Bílar

Opel Astra bíll ársins í Danmörku

Finnur Thorlacius skrifar
Nýjum Opel Astra hefur verið tekið með kostum og Opel hefur borist mikið af pöntunum í bílinn.
Nýjum Opel Astra hefur verið tekið með kostum og Opel hefur borist mikið af pöntunum í bílinn.
Fyrr í vikunni tilkynnti félag danskra bílablaðamanna um val á bíl ársins í Danmörku 2016. Nýjasti Opel Astra stóð uppi sem sigurvegari. Í þessu vali hafði  Astra betur í samkeppninni við virtar bílategundir eins og Volvo XC90, Audi A4, Jaguar XE og Mazda CX-3.

Þessi útnefning kemur í kjölfar annarra eftirsóknarverðra verðlauna sem Opel Astra hlaut nýverið og voru veitt í Berlín í síðasta mánuði, eða Gullna stýrið 2016.

Valið um bíl ársins í Danmörku hefur farið fram síðan 1969 og hefur Opel hampað titlinum fimm sinnum á þeim tíma. Fyrri sigurvegarar Opel eru eftirtaldir: Árið 2012: Rafmagnaður Opel Ampera,  2007: Opel Corsa, 1985: Opel Kadett og 1980: Opel  Kadett 1,3. Það er ljóst að Opel Astra er hvarvetna að slá í gegn.

Samkvæmt upplýsingum frá Bílabúð Benna, sem er umboðsaðili Opel á Íslandi, verður þessi verðlaunagripur kynntur rækilega á næstunni hjá fyrirtækinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×