Innlent

Hlustendur Bylgjunnar og lesendur Vísis velja Mann ársins 2015

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tómas Guðbjartsson læknir var valinn maður ársins í fyrra af hlustendum Bylgjunnar og lesendum Vísis.
Tómas Guðbjartsson læknir var valinn maður ársins í fyrra af hlustendum Bylgjunnar og lesendum Vísis.
Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna Mann ársins 2015 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 

Tekið er við tilnefningum á vefsvæði Bylgjunnar en frestur til að tilnefna rennur út næstkomandi mánudag, þann 14. desember. Ritstjórn Vísis og Reykjavík Síðdegis fara sameiginlega yfir innsendar tilnefningar og í kjölfarið hefst atkvæðagreiðsla. Einstaklingurinn verður heiðraður í árlegum áramótaþætti Reykjavík árdegis á Gamlársdag.

Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem Maður ársins 2014. Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi yfir jólin.

Tómas Guðbjartsson læknir var valinn maður ársins í fyrra en hér má sjá þá tíu sem kosið var á milli eftir að tilnefningum rigndi inn frá hlustendum og lesendum.

Tilnefndu þína konu eða þinn mann á vefsvæði Bylgjunnar með fullu nafni viðkomandi og stuttum rökstuðningi.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×