Innlent

Níu handteknir í umfangsmiklu steramáli

Birgir Olgeirsson skrifar
Hluti þess sem lögreglan gerði upptækt í aðgerðum sínum.
Hluti þess sem lögreglan gerði upptækt í aðgerðum sínum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Níu manns voru handteknir í gær í viðamiklum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn innflutningi stera, sölu, dreifingu og framleiðslu þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem lagði hald á mikið magn af sterum, mest megnis í formi dufts og taflna, auk búnaðar af ýmsu tagi, meðal annars til framleiðslu stera.

Lögreglan tók einnig í sína vörslu fjármuni, sem grunur leikur að séu tilkomnir vegna fyrrnefndrar starfsemi. Húsleitir voru framkvæmdir á allnokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, og ein í Reykjanesbæ með aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum. Rannsókn málsins er umfangsmikil og hefur staðið yfir um nokkurt skeið, en hún er unnin í samvinnu við embætti tollstjóra. Sakborningarnir, sem nú eru lausir úr haldi lögreglu, eru flestir á fertugsaldri, en í þeim hópi er ein kona. Greint verður nánar frá magni stera sem haldlagðir voru þegar vigtun og talningu þeirra er lokið. Við húsleitirnar í gær var einnig lagt hald á stinningarlyf og marijúana.

Aðgerðir íslenskra lögregluyfirvalda voru hluti af alþjóðlegri lögregluaðgerð (Operation Underground) undir forystu Europol og bandarísku fíkniefnalögreglunnar, DEA. Í gær voru því samtímis í mörgum öðrum löndum framkvæmdar handtökur og húsleitir þar sem einnig var lagt hald á stera. Ráðist var gegn innflutningi stera frá framleiðendum í Kína, en lögreglan segir þá vera mjög stórtæka á þessu sviði. Lögreglan segir einnig rétt að hugleiða við hvaða aðstæður sterar eru framleiddir og meðhöndlaðir í Kína og segir þær geta verið varhugaverðar og sterarnir því hættulegir eftir því

Níu manns voru handteknir í gær í viðamiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn innflutningi stera, sölu,...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Wednesday, 2 September 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×