Glamour

Karen Elson á Íslandi

Ritstjórn skrifar
Karen Elson
Karen Elson Glamour/Getty
Breska ofurfyrirsætan og tónlistarkonan Karen Elson lenti á Íslandi í morgun. Hún birti mynd á Instagram síðu sinni þar sem hún segist aldrei hafa verið eins fegin að lenda. 

Elson er vön að fljúga starfi síns vegna, en hún skrifaði við myndina að hún hafi aldrei lent í annarri eins ókyrrð. Hlutir hafi dottið úr farangurshólfunum fyrir ofan þau og flugfreyja Delta flugfélagsins hafi slasast.

Þar að auki hafi dóttir hennar og söngvarans Jack White, dottið úr sætinu sínu í öllum látunum.

Hvort Elson er hér í vinnuferð eða í fríi er ekki vitað.





Karen Elson á Met Gala fyrr á árinu
Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.






×