Glamour

Sérstök forsíða Vogue Japan

Ritstjórn skrifar
Forsíða Vogue Japan í ágúst.
Forsíða Vogue Japan í ágúst.
Forsíða ágúst blaðs Vogue Japan er svo sannarlega stjörnum prýdd. Þar eru þau Kendall Jenner, Jessica Chastain, Joan Smalls og Kanye West, ásamt yfirhönnuði Givenchy, Ricardo Tisci.

Á myndinni eru Kanye, Jessica og Ricardo nokkuð eðlileg, á meðan Kendall, Joan og fyrirsæturnar Jamie Bochert,  Mica Arganaraz og Akimoto Kozue eru með andlitið skreytt allskyns skarti og vatnsgreitt hárið niður á enni.

Á Instagram síðu Vogue Japan er einnig að finna myndbönd frá tökunum.










×