Lífið

Vinnustaðastríðni tekin alla leið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haukur Viðar Alfreðsson var þreyttur í vinnunni í dag. Hann hefur sennilega horft á NBA í nótt.
Haukur Viðar Alfreðsson var þreyttur í vinnunni í dag. Hann hefur sennilega horft á NBA í nótt. vísir
Haukur Viðar Alfreðsson, starfsmaður á auglýsingastofunni Brandenburg, fékk sér lúr eftir hádegismatinn í dag.

Einn samstarfsmaður brá á það ráð að taka mynd af honum sofandi og sendi á alla starfsmenn fyrirtækisins, fyrir utan Hauk.

Starfsmennirnir skemmtu sér vel við það að „photoshop-a“ Hauk inn á allskyns myndir, margar hverjar mjög frægar.

Sjón er sögu ríkari og má sjá myndirnar hér að neðan.

Hann Haukur fékk sér lúr í hádeginu og að sjálfsögðu festum við það á filmu. Eineltispésar Brandenburgar léku sér síðan með myndefnið og að sjálfsögðu deilum við afrakstrinum með ykkur.

Posted by Brandenburg - auglýsingastofa on 10. júní 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×