Íslenski boltinn

Kristinn Jónsson skrifar undir nýjan samning

Kristinn Jónsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik um þrjú ár.
Kristinn Jónsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik um þrjú ár. vísir/vill
Kristinn Jónsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Breiðablik. Kristinn hefur þótt leika feykilega vel á þessari leiktíð og vann sér sæti í íslenska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Tékkum.

Kristinn er 25 ára gamall og hefur spilað 196 leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks. Í þeim hefur hann skorað 13 mörk. Kristinn var á láni hjá IF Brommapojkarna á síðustu leiktíð.

Þetta eru klárlega gleðileg tíðindi fyrir Breiðablik sem mætir Víkingum á heimavelli sínum á morgun í 8. umferð Pepsi-deildar karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×