Sport

Ísland getur tryggt sér gull í strandblakinu á morgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Berglind og Elísabet kátar eftir sigurinn í dag.
Berglind og Elísabet kátar eftir sigurinn í dag. vísir/ernir
Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir báru sigurorð af Lúxemborg í strandblakskeppninni á Smáþjóðaleikunum í dag.

Stelpurnar unnu leikinn í tveimur hrinum, 21-15 og 21-16.

Þetta var fjórði sigur Berglindar og Elísabetar á leikunum en þær eru enn með fullt hús stiga.

Ísland mætir Mónakó í lokaleik sínum á morgun og getur með sigri tryggt sér gullverðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×