Íslenski boltinn

FH lánar Diedhiou til Leiknis

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Diedhiou mun leika sína fyrstu leiki á Íslandi með Leikni.
Diedhiou mun leika sína fyrstu leiki á Íslandi með Leikni. mynd/fh.is
Leiknismenn hafa fengið liðsstyrk fyrir átökin í Pepsi-deild karla en í dag fengu Breiðhyltingar Amath André Diedhiou á láni frá FH. Þetta kemur fram á Fótbolta.net.

Diedhiou, sem er 25 ára gamall Senegali, kom til FH í vetur en illa gekk að fá leikheimild fyrir hann. Hún fékkst þó loks á miðvikudaginn.

Diedhiou gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Leikni þegar nýliðarnir sækja Íslandsmeistara Stjörnunnar heim í 3. umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudaginn.

Kamerúnski bakvörðurinn Charley Fomen gæti einnig leikið sinn fyrsta leik með Leikni á sunnudaginn en hann fékk leikheimild með liðinu á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×