Glamour

Kanye West sló út Lagerfeld

Kanye West og Lagerfeld á tískuvikunum.
Kanye West og Lagerfeld á tískuvikunum.
Ár hvert á tískuvikum gefur style.com út lista með síðuflettingum og heimsóknum á vefsíðu sína og raðar þeim niður á hönnuði. Þannig gefa þeir út topp 10 lista með mest heimsóttu sýningunum á þeirra síðu. Tískuhúsið Chanel hefur alltaf unnið og það með nokkrum yfirburðum. Í ár var þó annað uppá teningnum þegar Karl Lagerfeld og hans teymi varð að lúta í lægra haldi fyrir nýliða á listanum - Kanye West.

Kanye West x Adidas Originals laðaði að ótrúlegar 4.578.461 síðuflettingar á meðan Chanel fékk “aðeins” 3.405.945 flettingar. 



Vinsældir herra West virðast vera ótrúlegar um þessar mundir, en viðtal sem style.com birti eftir sýningu hans sló einnig met á síðunni sem mest lesna einstaka fréttin. 

Forsvarsmenn síðunnar vilja meina að hugmynd Kanye um að koma hönnun og gæðum í svona fjöldaframleiðslu sé rétt tímasett og passi vel inní tískuheiminn í dag. Línan hans hefur því höfðað til mun stærri hóps en t.d. línan frá Chanel. Samskiptamiðlar eru líka með Kanye í liði, en þeir hjálpa til við að skapa þessa miklu traffík. Sem dæmi um það má nefna að allir meðlimir Karadashian fjölskyldunnar tvítuðu um atburðinn.

West á sýningunniglamour/getty
Kanye West hélt kúlinu. HÉR má skoða sýninguna í heild sinni.

STYLE.COM/GETTY
Karl Lagerfeld þakkar fyrir sig í New York. HÉR má skoða sýninguna í heild sinni.

Tölurnar sýna hversu oft hver og ein sýning var skoðuð á vefsíðu STYLE.COM
Áhugavert var að Gucci færðist ofar á listann með nýjan listrænan stjórnanda sem virðist vera að gera réttu hlutina. GLAMOUR hlakkar til að fylgjast betur með þeirri þróun.

Elísabet Gunnars bloggar - HÉR

Instagram - HÉR

Twitter - HÉR







×