Heilsa

Umskorið typpi

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Umskurður getur verið mikið hitamál en oftast er það framkvæmt á ungum drengjum af trúarlegum ástæðum. 

Það kemur fyrir að typpi þurfi að umskera af líffræðilegum ástæðum, líkt og þegar forhúðin er of þröng eða viðkomandi fær slæma sýkingu.

Vísindavefurinn hefur þetta að segja um umskurð:

Umskurður kallast sú aðgerð þegar forhúðin er skorin af limnum með beittum hníf, venjulega á fyrstu dögunum eftir fæðingu sveinbarnsins. Þetta er oftast gert án mikillar deyfingar og yfirleitt tekur um viku til tíu daga að jafna sig, svo sem að losna við verki. Batinn getur þó tekið mun lengri tíma ef drengurinn fær blæðingu eða sýkingu í kjölfar aðgerðarinnar

Á 18. öld var umskurður innleiddur í enskumælandi löndum í forvarnarskyni gegnsjálfsfróun, en þá töldu margir að hún ylli alls konar hættulegum sjúkdómum. Þetta er að sjálfsögðu alrangt.

Umskurður er ekki það sem sker úr um hvort menn sé góðir elskhugar eða ekki því það felst meira í góðu kynlífi en tilvist eða fjarvera forhúðar.

Hér er áhugaverð heimildarmynd um hugmyndir og upplifun manna af því að vera með umskorið typpi.


Tengdar fréttir

Bogið typpi

Það er eðlilegt að vera með bogið typpi en getur boginn verið of mikill, jafnvel hættulegur?

Maður án typpis

Karlmaður missti typpi sitt eftir að hafa hurð var skellt á hann, hvernig er kynlíf hjá slíkum manni?

Kynfæramót

Myndir þú gera mót af þínum kynfærum?

Risvandamál

Hér er fjallað um vandamál við stinningu typpis, ekki erfðileika við að vakna á morgnanna.

Forhúðin

Forhúðin ver kónginn (fremsta hluta typpisins) og getur verið þröng, víð, mikil, lítil og jafnvel ekki til staðar.

Getur typpið minnkað?

Margir pæla í typpastærð en getur typpið minnkað eða jafnvel horfið?

Tölva á typpinu

Nú er hægt að smella typpahring á sig fyrir samfarir sem sendir svo félögunum upplýsingar um hvernig þú stóðst þig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×