Sport

María stóð sig best í Vail

Anton Ingi Leifsson skrifar
Frá vinstri: María, Helga, Freydís og Erla.
Frá vinstri: María, Helga, Freydís og Erla. Vísir/Fésbókarsíða SKÍ
Svigi lauk á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í gær, en keppt er í Vail í Bandaríkjunum. María Guðmundsdóttir stóð sig best íslenskra keppenda.

María lenti í 36. sæti. Fyrri ferðina fór hún á 55;78, en þá síðari 52;62. Næst kom Helga María Vilhjálmsdóttir í 42. sæti á 57;60 og 53;92.

Erla Ásgeirsdóttir var svo í því 45., en hún skíðaði á 57;87 og 55;06. Freydís Halla Einarsdóttir komst ekki í síðari umferðina, en einungis sextíu efstu tóku aftur svig.

Mikaela Shriffrin frá Bandaríkjunum vann, en hún fór á tímanum 50;07 og 48;41.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×