Sport

Sigfús talaði gegn steranotkun: Eitt fall er einu falli of mikið

Sigfús er margverðlaunaður kraftlyftingamaður.
Sigfús er margverðlaunaður kraftlyftingamaður. mynd/sigurjón pétursson
„Það geta allir komið illa út úr því ef einhver fellur á lyfjaprófi. Einhverjir halda kannski að það sé bara þeirra mál, en það er ekki þannig," sagði kraftlyftingamaðurinn Sigfús Fossdal í viðtali í lok apríl árið 2013.

Sigfús féll á lyfjaprófi í desember á síðasta ári. Hann hefur verið dæmdur í tveggja ára bann en hefur ákveðið að áfrýja til íþróttadómstólsins í Sviss eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun.

Hann hefur verið formaður hjá kraftlyftingafélaginu Víkingi á Ísafirði og gerir talsvert úr því í viðtalinu við Bæjarins besta árið 2013 hversu mikið félagið leggi upp úr því að menn séu ekki að gera varasama hluti.

Sjá einnig: Féll á lyfjaprófi og ætlar að áfrýja til íþróttadómstólsins

„Ég þjálfa ekkert utan félagsins og veit því ekki hvernig staðan er annars staðar. Kraftlyftingafélagið Víkingur er innan ÍSÍ og er þar af leiðandi lyfjaprófað. Við leggjum mikið upp úr því að menn séu ekki að fikta í neinu sem getur verið varasamt," segir Sigfús og bætir við síðar í viðtalinu. „Eitt fall er einu falli of mikið."

Í lok viðtalsins ítrekar Sigfús að það sé hægt að ná árangri í íþróttum án þess að nota ólögleg efni.

„Númer eitt, tvö og þrjú til að ná árangri í íþróttum er ástundun, hollt mataræði og góð hvíld. Það kemur engin lyfjaneysla í staðinn fyrir þessi atriði. Það er hægt að ná öllum þeim árangri sem menn ætla sér ef menn leggja sig fram."

Sigfús vildi ekki ræða mál sitt efnislega við Fréttablaðið í gær en sagðist eiga von á annarri niðurstöðu hjá áfrýjunardómstólnum í Lausanne.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×