Sport

Hrafnhildur og Kraftur stálu senunni í Sprettshöllinni

Hrafnhildur Jónsdóttir og Kraftur frá Keldudal. Sigurvegarar gærkvöldsins.
Hrafnhildur Jónsdóttir og Kraftur frá Keldudal. Sigurvegarar gærkvöldsins. mynd/Gígja Einarsdóttir/Eiðfaxi.
Hrafnhildur Jónsdóttir og Kraftur frá Keldudal fögnuðu sigri í fjórgangi á móti sem Sprettur hélt í Sprettshöllinni. Lið Barka sigraði í liðakeppninni.

Þetta var fyrsta keppni í  Glugga og gler-deildinni sem er áhugamannadeild Spretts. Áhugamannadeild Spretts var stofnuð á haustmánuðum 2014 og var hugmyndin að gera nýjan vettvang fyrir áhugamenn að keppa innanhúss á veturna. Fyrirmyndin er Meistaradeildin í hestaíþróttum og er Áhugamannadeildin röð fjögurra móta sem haldin eru aðra hverja viku í Sprettshöllinni. Um er að ræða einstaklings- og liðakeppni þar sem knapar safna stingum fyrir sig og sitt lið.

„Það eru ákveðin tímamót fyrir hestamenn að slík deild fyrir áhugamenn líti dagsins ljós“ segir Linda Björk Gunnlaugsdóttir, formaður hestamannafélagsins Spretts.  

Alls eru 14 lið skráð í mótaröðina og samtals riðu 42 knapar í forkeppni og 7 knapar komust svo í úrslit. Í gær var einnig gengið frá styrktarsamningi við fyrirtækið Gluggar og Gler sem styrkir deildina. Frábær mæting var í höllina en má áætla að ríflega 700 manns hafi komið til að horfa á þessa skemmtilegu keppni.

„Mætingin í kvöld fór fram úr okkar björtustu vonum, íþróttaviðburðir í hestamennsku eru sjaldan að ná slíkum áhorfendafjölda og erum við afar sátt eftir kvöldið“ segir Linda Björk

Forkeppnin gekk frábærlega, mikið um glæsihross og góða reiðmennsku. Mikil spenna og sviptingar voru í úrslitunum og mjótt á munum.

Úrslitin í fjórganginum:

1. Hrafnhildur Jónsdóttir - Kraftur frá Keldudal (6,57) - Mustad

2. Hrefna Hallgrímsdóttir - Penni frá Sólheimum (6,37) - Vagnar og þjónusta

3. Jón Steinar Konráðsson - Veröld frá Grindavík (6,3) - Kæling

4.-5. Gunnhildur Sveinbjarnardóttir - Skjálfti frá Langholti (6,27) - Barki

4.-5. Viðar Þór Pálmason - Mön frá Lækjamóti (6,27) - Margrétarhof

6. Halldóra Baldvinsdóttir - Tenór frá Stóra-Ási (6,07) - 3 Frakkar

7. Játvarður Jökull Ingvarsson - Röst frá Lækjamóti (0) – Margrétarhof

Lið Barka sigraði liðakeppni kvöldsins og fóru þær Petra Björk Mogensen, Rut Skúladóttir, Gunnhildur Sveinbjarnardóttir og Birgitta Dröfn Kristinsdóttir heim með liðaplattann í lok kvölds.

Næsta mót fer fram miðvikudaginn 18 febrúar og verður það Úrval Útsýn fimmgangur. Aðgangur í höllina er ókeypis og hvetjum við alla sem áhuga hafa á að mæta og upplifa þessa frábæru skemmtun.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×