Handbolti

Brand setur pressu á Dag og lærisveina hans

Í sviðsljósinu. Dagur Sigurðsson verður undir pressu á HM.
Í sviðsljósinu. Dagur Sigurðsson verður undir pressu á HM. vísir/getty
Heiner Brand, fyrrum landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur trú á þýska liðinu á HM í Katar og spáir því góðu gengi.

„Ef allt smellur á stórmóti þá er ýmislegt hægt. Liðið gæti þess vegna komist í undanúrslit," sagði Brand eftir að hafa fylgst með liði Dags Sigurðssonar í síðustu leikjum.

„Það þarf mikið hugrekki og heppni til en menn verða að fara jákvæðir inn í stórmót."

Eftir fína frammistöðu í tveim leikjum gegn Íslandi þá luku Þjóðverjar undirbúningi sínum með tveimur sannfærandi sigrum - 32-24 og 27-22 - á Tékkum sem eru einmitt í riðli Íslands á HM.

„Auðvitað getur liðið enn bætt sinn leik en með varnarleik sínum getur þýska liðið gert hvaða liði sem er skráveifu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×