Lífið samstarf

Góð lausn við vöðvabólgu

Ertu með þreytta vöðva eða aum liðamót? Áttirðu erfiða vinnuviku eða tókstu of vel á því í ræktinni og finnur til í vöðvum sem þú vissir ekki að væru til? Þá kemur Deep Heat til bjargar.



Hvað er Deep Heat?

Deep Heat-vörurnar hjálpa til við að losa um vöðvaverki og spennu.

Deep Heat fæst sem sprey, baðolía, plástur og krem sem borið er á auma vöðva.



Hvað er Deep Freeze?


Deep Freeze-vörurnar eru hannaðar til að kæla meiðsl og sporna við bólgumyndun. Til að lágmarka sársauka þarf að bregðast hratt við og kæla svæðið strax. Deep Freeze hentar vel fyrir harða tæklingu, tognun eða meiðsl og minnkar sársauka, léttir á vöðvaverkjum, kælir og kemur þér aftur af stað.

Deep Freeze fæst sem sprey sem nota má beint á meiðsl, gel sem nota má á meðan á æfingu stendur eða strax eftir æfingu og kælir þá í allt að 60 mínútur.



Muscle Rescue - lausn fyrir þig?


Nýjasti meðlimur Deep Heat-fjölskyldunnar er Muscle Rescue. Flestar konur þjást af vöðvabólgu og þar kemur Muscle Rescue til hjálpar. Kreminu fylgir svampur sem auðveldar smurningu á axlir og háls og einnig er hægt að leggjast í endurnærandi bað með Muscle Rescue-baðolíu.

Splunkuný Muscle Rescue-línan er með yndislegum rósmarín- og vanilluilmi og því fylgir henni ekki hefðbundin hitakremslykt. Muscle Rescue er tilvalið fyrir skrifstofufólk, námsmenn og alla þá sem finna fyrir bólgum í herðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×