Skoðun

Traust fjármálastjórn, grunnur framtíðar

Ármann Kr. Ólafsson skrifar
Frá því að nýr meirihluti tók við um mitt kjörtímabil má segja að skipt hafi verið um gír í Kópavogi. Í raun má segja að í tíð síðasta meirihluta hafi Kópavogur verið í handbremsu. Það er að mörgu leyti skiljanlegt því það er flókið að vera með fjögurra flokka meirihluta þar sem ólík sjónarmið og andstæðir kraftar eru sífellt að takast á. Með tilkomu nýs meirihluta var strax hafist handa við að koma hreyfingu á hlutina. Það tókst og voru greinileg merki um viðhorfsbreytingu í bænum á fyrstu dögum meirihlutans. Við tók tímabil þar sem bærinn og atvinnulífið tók höndum saman. Þess má víða sjá merki í bænum þar sem endurreisn byggingamarkaðarins hófst í Kópavogi. Nú þegar hefur verið flutt inn í fjölmörg hús og íbúðir sem byrjað var á fyrir einungis tveimur árum.

Kröftug uppbygging

Við munum halda áfram kröftugri uppbyggingu íbúðahverfa sem var hrundið af stað þegar nýr meirihluti tók við en um leið verður áfram lögð áhersla á niðurgreiðslu skulda. Allar tekjur af lóðaúthlutunum munu fara í niðurgreiðslu skulda. Það er mjög mikilvægt að halda sig við þá stefnu því þar sparast 70-100 milljónir króna á ári af hverjum milljarði sem við greiðum upp. Þetta eru miklir fjármunir, ekki síst þegar horft er yfir heilt kjörtímabil. Þessa peninga er hægt að nota til að bæta þjónustuna við bæjarbúa. Við munum einnig halda áfram á braut skatta- og gjaldalækkana.

Enn betri skólar

Helsta áherslumál okkar á næsta kjörtímabili er að gera skólana okkar enn þá betri. Við munum halda áfram á þeirri braut sem við höfum markað og skilað góðum árangri. Við munum horfa til allra skóla og skólastiga. Við munum auka fjölbreytni í dægradvölinni og beita okkur fyrir því að heimanámið verði hluti af daglegu starfi dægradvalar. Við munum leggja áherslu á að skólarnir okkar séu í fremstu röð og nýti sér kosti upplýsingatækninnar.

Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hefur okkur tekist að snúa vörn í sókn. Við horfum björtum augum til framtíðar. Verum þess minnug að traust fjármálastjórn með lækkun skulda bæjarsjóðs og lækkun gjalda er ekki sjálfgefin. Við verðum að vinna markvisst að framgangi Kópavogs og það verður best gert með markvissum vinnubrögðum. Gylliboð stjórnmálaflokka mega ekki verða til þess að við beygjum af þeirri leið sem mörkuð hefur verið síðustu tvö árin.




Skoðun

Sjá meira


×