Lífið

Ilmaðu eins og strákasveit

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Strákarnir í One Direction dýfa sér í ilmvatnsbransann.
Strákarnir í One Direction dýfa sér í ilmvatnsbransann.
Strákasveitin One Direction, sem samanstendur af Niall Horan, Zayn Malik, Liam Payne, Harry Styles og Louis Tomlinson, ætlar að setja sitt annað ilmvatn á markað og fer það í sölu í Bandaríkjunum 5. maí. Ilmvatnið heitir einfaldlega That Moment en þeir settu ilminn Our Moment á markað í júní í fyrra.

One Direction lætur sér ekki nægja að framleiða bara ilmvatn í þetta sinn og verður líka sturtusápa og líkamskrem í línunni.

Sveitin lenti í þriðja sæti í sjöundu seríu af breska X Factor árið 2010. Í kjölfarið skrifuðu strákarnir undir samning við tónlistarútgáfu mógúlsins Simons Cowell, Syco Records.

Strákarnir eru langt frá því að vera fyrstu stjörnurnar sem framleiða ilmvötn undir sínu nafni en meðal fræga fólksins sem hefur dembt sér út í ilmbransann eru Christina Aguilera, Jennifer Aniston, Britney Spears, Peter Andre, Beyoncé, David Beckham og Justin Bieber.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×