Lífið

Vantar liðsauka fyrir HönnunarMars

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
Ástríður Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands, óskar eftir sjálfboðaliðum.
Ástríður Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands, óskar eftir sjálfboðaliðum. mynd/gva
Okkur vantar liðsauka fram að HönnunarMars. Það er allt að fara á fullt,“ segir Ástríður Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands, sem stendur fyrir hátíðinni HönnunarMars en undirbúningur hátíðarinnar er þegar hafinn.

HönnunarMars verður haldinn í sjötta sinn, dagana 27. til 30. mars og sýnir þverskurð þess sem er að gerast í íslenskum hönnunarheimi. Hátíðin hefur fest sig rækilega í sessi en um þrjátíu þúsund manns sóttu viðburði og sýningar á HönnunarMars í fyrra, samkvæmt könnun Capacent, eða um tíu prósent þjóðarinnar. Þar að auki sækja erlendir fjölmiðlar hátíðina heim og hafa umfjallanir um íslenska hönnuði og HönnunarMars birst í víðlesnum tímaritum og vefmiðlum, svo sem Dwell Magazine, Frame, Form og Coolhunting.com.

„Við erum einmitt þegar farin að senda erlendum fjölmiðlum sýnishorn af því sem verður í boði þetta árið og skráning viðburða er hafin. Síðustu ár hafa dagskráratriði HönnunarMars verið í kringum hundrað talsins og af ýmsum toga. Fyrirlestrar, sýningar, viðburðir og opin hús og fleira,“ segir Ástríður. Það er því í mörg horn að líta.

„Verkefni sjálfboðaliðanna verða margvísleg. Til dæmis myndvinnsla, texta- og gagnavinnsla fyrir heimasíðu, app og dagskrárbækling. Þetta er mjög skemmtilegt starf sem stigmagnast þegar nær dregur og andinn hér í Hönnunarmiðstöð er sérlega góður,“ útskýrir Ástríður og segir sjálfboðaliðastarfið jafnframt dýrmæta reynslu.

„Oft eru þetta íslenskir hönnuðir nýkomnir heim eftir nám erlendis en þetta er góð leið til að kynnast hönnunarsamfélaginu á Íslandi og mynda tengsl. Sjálfboðaliðar hafa einnig oft ílengst og aftur og aftur verið að hóa í þá í önnur verkefni. Tveir af starfsmönnum Hönnunarmiðstöðvar byrjuðu einmitt sem sjálfboðaliðar á HönnunarMars svo þetta getur falið í sér ýmis tækifæri.“

Á vefsíðu Hönnunarmars má fylgjast með viðburðum HönnunarMars 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×