Handbolti

Vignir: Hef ekki verið svona góður í bakinu í rúman mánuð

Henry Birgir Gunnasson í Álaborg skrifar
Vignir Svavarsson fagnar hér sigrinum á Noregi í fyrsta leiknum á EM í Danmörku.
Vignir Svavarsson fagnar hér sigrinum á Noregi í fyrsta leiknum á EM í Danmörku. fréttablaðið/Daníel
Vignir Svavarsson átti frábæran leik í vörn Íslands gegn Norðmönnum. Hann hefur verið að glíma við meiðsli í baki en þau virtust ekki há honum í fyrsta leik EM.

„Bakið var mjög gott í leiknum. Ég var svolítið þreyttur eftir leik en hef verið í meðhöndlun og er bara sprækur,“ sagði Vignir en hann er bjartsýnn á að bakið haldi.

„Ég hef ekki verið svona góður í bakinu í rúman mánuð. Ég missti tæpan mánuð úr vegna meiðslanna áður en ég kom heim, en sjúkraþjálfararnir hafa hjálpað mér mikið. Það er allt á réttu róli og vonandi er þetta að baki.“

Vignir býst við álíka miklum átökum gegn Ungverjum eins og gegn Norðmönnum.

„Þetta verða öðruvísi átök enda margir þyngri hjá þeim,“ segir Vignir, en hefur hann samið við Sverre félaga sinn um að hann reyni að klára næsta leik með sér en Sverre fékk rautt gegn Norðmönnum.

„Ég hef rætt það við hann að þetta gangi ekki. Ég er brjálaður," sagði Vignir léttur.

„Það eru annars allir jákvæðir og hafa mikla trú á verkefninu. Maður fann það strax gegn Noregi að allir voru til í að gefa allt sem þeir eiga. Ef við höldum því hugarfari erum við til alls líklegir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×