Handbolti

Strákarnir tróðu upp í Norðmenn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar Kárason kom inn á og skoraði fjögur falleg mörk fyrir Ísland gegn Noregi.
Rúnar Kárason kom inn á og skoraði fjögur falleg mörk fyrir Ísland gegn Noregi. Fréttablaðið/Daníel
Handboltasérfræðingar höfðu miklar áhyggjur af varnarleik íslenska liðsins fyrir mótið en strákarnir sýndu strax í byrjun að þær áhyggjur voru með öllu óþarfar. Þeir mættu gríðarlega einbeittir út á völlinn, grimmir sem aldrei fyrr og smelltu í lás strax í upphafi.

Norðmenn vissu vart sitt rjúkandi ráð. Þeir voru í vandræðum með að koma skoti á markið og fengu síðan vel útfærð hraðaupphlaup í andlitið hvað eftir annað. Eftir aðeins sjö mínútur var staðan orðin 6-1 og strákarnir að leika við hvurn sinn fingur. Það var hreinn unaður að fylgjast með þeim á vellinum.

Mesti móðurinn var farinn af mönnum eftir rúmlega tíu mínútna leik. Þá náðu Norðmenn að minnka muninn í þrjú mörk, 8-5, en þá sögðu strákarnir okkar hingað og ekki lengra. Þeir skelltu aftur í fluggírinn og breikkuðu bilið á ný. Mestur var munurinn í hálfleiknum sjö mörk, 16-9, en sex mörkum munaði í hálfleik, 16-10.

Þessi hálfleikur var í einu orði sagt stórkostlegur og eflaust enginn sem átti von á slíkri frammistöðu, nema kannski leikmennirnir sjálfir.

Það var ekki alveg sami kraftur í leik íslenska liðsins framan af síðari hálfleik. Ákveðið agaleysi var í leik beggja liða og því fylgdu margar sveiflur. Norðmenn minnkuðu muninn í þrjú mörk og Ísland svaraði með því að ná fimm marka forskoti að bragði. Alltaf þegar Norðmenn voru að komast nálægt svaraði Ísland með stæl. Það var alltaf einhver til í að stíga upp og Norðmenn minnkuðu muninn aldrei í meira en þrjú mörk.

Sigur íslenska liðsins var glæsilegur. Eftir mikið mótlæti í undirbúningnum þjappaði liðið sér saman og skilaði frábærum leik. Fyrri hálfleikur var flugeldasýning og liðið sýndi síðan mikinn styrk í þeim seinni. Liðið varð fyrir áfalli snemma leiks þegar Aron Pálmarsson meiddist en það breytti engu. Það lögðu allir sín lóð á vogarskálarnar. Þessi sigur lofar góðu fyrir framhaldið. Þjálfarinn treysti mörgum leikmönnum, rúllaði á mörgum mönnum og allir stóðu fyrir sínu.

Járnmaðurinn Guðjón Valur fór fyrir sínu liði í leik sem fæstir bjuggust við að hann myndi spila. Ótrúlegur íþróttamaður sem sýndi mátt sinn enn eina ferðina. Ásgeir Örn sýndi mikinn andlegan styrk með því að bugast ekki eftir að illa hafði gengið framan af. Hann steig svo upp og skilaði flottum leik. Rúnar leysti hann vel af hólmi og skoraði flott mörk. Hægri vængurinn að skila sínu og rúmlega það.

Varnarleikurinn var frábær frá fyrstu mínútu. Sverre og Vignir eins og klettar og rifu aðra með sér. Þegar vörnin skilar sínu þá dettur Björgvin Páll í stuð og á því var engin undantekning núna. Hinn einlægi fögnuður hans eftir hvert varið skot er smitandi, bæði til liðsins og ekki síst áhorfenda sem voru frábærir.

Þetta var samt sigur liðsheildar. Liðs sem hefur risastórt hjarta og mikið stolt. Með þennan baráttuanda að vopni óttast ég ekki framhaldið.


Tengdar fréttir

Frábær sigur á Norðmönnum | Myndir

Ísland hóf leik á EM í Danmörku á besta mögulegan máta þegar að strákarnir okkar unnu sannfærandi fimm marka sigur á Noregi, 31-26.

Arnór: Vorum frábærlega vel stemmdir

"Þetta var stórkostlegt. Frá byrjun var þetta bara frábært," sagði Arnór Atlason eftir leik en reynsla hans var oft ansi dýrmæt í sigrinum á Norðmönnum.

Meiðsli Arons ekki alvarleg

Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari, sagði eftir sigurinn á Noregi í dag að ökklameiðsli Arons Pálmarssonar væru ekki alvarleg.

Þórir: Vorum aldrei að fara að tapa þessum leik

Hornamaðurinn knái, Þórir Ólafsson, sýndi hvað í honum býr gegn Noregi í dag með frábærum mörkum úr mjög þröngum færum. Hann gat því leyft sér að brosa aðeins eftir leik.

Aron: Ég verð klár í næsta leik

Íslenska landsliðið vann sigurinn glæsilega gegn Noregi nánast án Arons Pálmarssonar. Hann meiddist snemma í leiknum og gat ekki snúið aftur.

Björgvin: Okkur leið eins og á heimavelli

Markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson átti frábæran leik fyrir Ísland er það lagði Noreg af velli. Björgvin varði oft glæsilega og svaraði öllum gagnrýnisröddum á réttan hátt.

Bjarki: Miklu skemmtilegra en ég átti von á

Varnarmaðurinn Bjarki Már Gunnarsson þreytti frumraun sína á stórmóti í dag og leysti sitt hlutverk vel. Hann varð að spila síðustu þrettán mínútur leiksins eftir að Sverre Jakobsson hafði fengið rautt spjald.

Hedin neitar að gefast upp

Robert Hedin, landsliðsþjálfari Noregs, var gagnrýndur eftir tap hans manna gegn Íslandi á fyrsta leik EM í handbolta í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×