Sport

Áramótasprengja Skjálfanda á X-inu á morgun

Ekkert er að marka þessa gömlu auglýsingu. Skjálfandi verður aðeins á morgun.
Ekkert er að marka þessa gömlu auglýsingu. Skjálfandi verður aðeins á morgun.
Henry Birgir Gunnarsson dregur útvarpsþáttinn sinn, Skjálfanda, aftur úr skúffunni á morgun.

Áramótasprengja Skjálfanda verður á milli 12 og 14 á morgun og jafnvel lengur ef þörf krefur. Líkt og áður verður þátturinn á X-inu 97.7.

Í þættinum verður íþróttaárið 2014 gert upp og einnig verður horft til framtíðar enda ýmislegt áhugavert sem bíður á næsta íþróttaári.

Góðir gestir munu mæta í gasklefann til þess að gera upp árið og er af nógu að taka. Gestir þáttarins verða Hörður Magnússon, Guðjón Guðmundsson, Baldur Beck, Benedikt Bóas Hinriksson, Einar Örn Jónsson og Kjartan Atli Kjartansson.

Hægt verður að hlusta á þáttinn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×