Jól

Jóladagatal - 11. desember - Hjartapokar

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum.

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Hann er loksins runninn upp, dagurinn sem við allir krakkar eru búnir að bíða lengi eftir. Í kvöld fara skórnir út í glugga.

Stekkjastaur er væntanlegur í nótt og hann ætlar að lauma einhverju skemmtilegu í skóinn hjá börnunum. Nema auðvitað þessum óþekku, þau fá kartöflu í skóinn.

En Hurðaskellir og Skjóða halda áfram að föndra. Í dag búa þau til hjartapoka til þess að hengja á jólatréð.

Klippa: 11. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×