Jól

Jóladagatal - 3. desember - Sultukrukkum breytt í snjókúlur

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í dag kennir Hurðaskellir sniðugan hlut. Hann ætlar að breyta gömlum sultukrukkum í snjókúlur sem snjóar í.

Þetta föndur er svolítið flókið en að sama skapi eru snjókúlurnar afskaplega fallegar. Það er því við hæfi að börn fái aðstoð frá fullorðnum við föndrið.

Klippa: 3. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×