Matur

Óhollasti hamborgari í heimi?

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Greene King
Breska veitingastaðakeðjan Hungry horse, eða Svangur hestur, setti nýverið nýjan hamborgara á matseðla sína. Sem væri svo sem ekki frásögum færandi, nema að vangaveltur eru uppi um hvort óhollasta hamborgara í heimi sé að ræða.

Í hamborgaranum eru tveir borgarar með osti, fjórar beikonsneiðar og BBQ sósa, sem sett er á milli tveggja sykurhúðaðra kleinuhringja. Double donut burger, eins og hann er kallaður ytra, er 1.996 kaloríur, samkvæmt vef Telegraph. Sem er 98 prósent af ráðlögðum dagsskammti kvenna.

Hann er auglýstur undir slagorðinu: „Svo rangt, að það er rétt.“

Á vef BBC segir að gagnrýnendur hafi kallað hamborgarann: „Hjartaáfall á diski.“

Þá hefur hamborgarinn einnig orðið fyrir mikilli gagnrýni á Twitter, eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×