Innlent

Kveikt í bíl á Akureyri með Molotov-kokteil

Vísir
Kveikt var í mannlausum fólksbíl með svonefndum Molotov-kokteil, eða bensínsprengju rétt fyrir klukkan fimm í morgun, þar sem hann stóð á bílastæði í íbúðahverfi á Brekkunni á Akureyri, og varð hann þegar í stað alelda.

Svo vel vildi til að  lögreglumenn á eftirlitsferð urðu eldsins strax varir og hringdu þegar á slökkviliðið sem slökkti eldinn, en bíllinn er ónýtur og kunna að hafa orðið einhverjar skemmdir á nálægum bílum.

Brennuvargurinn komst undan, en eiganda bílsins grunar hver hann er og er hans nú leitað. Að sögn lögreglu var þetta óvenju bíræfið og afar fátítt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×