Harmageddon

Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela

Frosti Logason skrifar
Sindri Guðjónsson.
Sindri Guðjónsson.
Sindri Guðjónsson, þýðandi og lögfræðingur, er sérstakur áhugamaður um Mið-Austurlönd og dvaldi meðal annars í Jórdaníu á síðasta ári til þess að kynnast staðarháttum og menningu.

Sindri skilur og talar arabísku og notaði dvöl sína í Jórdaníu einnig til að skerpa á tungumálinu. Þar kynntist hann fólki sem hafði tekið þátt í átökunum í Sýrlandi með hinum ýmsu baráttuhópum eins og Sýrlenska frelsishernum og Jabhat al-Nusra.

Rætt var við Sindra í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun um hryðjuverkahópinn Íslamska ríkið, áður þekktur sem ISIS, sem að óhætt er að segja að sé orðin  ein áhrifamesta fylking uppreisnarmanna í Sýrlandi og Írak enda hefur hann  verið þar í stöðugri og mjög blóðugri sókn undanfarna mánuði.

Sindri segir augljóst að Íslamska ríkið búi yfir mikilli hernaðargetu enda hefur hópurinn verið að berjast á mörgum vígstöðum í einu án þess að það hafi bitnað á árangri þeirra. Hópurinn hefur til að mynda barist við stjórnarherinn í Sýrlandi sem hefur verið vel studdur af Íran á sama tíma og þeir hafa barist þar við gömlu uppreisnarhreyfingarnar, eins og sýrlenska frelsisherinn (e. Free Syrian-Army) sem voru þó að kljást við sameiginlegan óvin þeirra, Assad Sýrlandsforseta.

Hið áhugaverða viðtal við Sindra Guðjónsson má heyra hér á útvarpssíðu Vísis.








×