Sport

Annar heimsmeistaratitill unglinga í bekkpressu

Viktor efst á pallinum.
Viktor efst á pallinum. mynd/kraftlyftingasambandið
Íslensku unglingarnir eru heldur betur að gera það gott á HM unglinga í bekkpressu.

Fanney Hauksdóttir hafði áður tryggt sér heimsmeistaratitil og nú hefur Blikinn Viktor Ben Gestsson endurtekið þann leik í +120 kg flokki.

Hann lyfti seríuna 235 – 242,5 – 255 og blés ekki úr nös.

Þetta er nýtt Íslandsmet drengja. Viktor er fæddur 1996 og er á síðasta ári í drengjaflokki.


Tengdar fréttir

Gullið er bónus

Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingakona úr Gróttu, varð heimsmeistari unglinga í bekkpressu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×