Jón Gnarr vekur heimsathygli Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. maí 2014 14:00 Jón Gnarr hefur vakið mikla athygli.
Jón Gnarr borgarstjóri hefur fengið mikla athygli í erlendum fjölmiðlum að undanförnu. Í gær birti miðillinn Vice ítarlegt viðtal við borgarstjórann og í því var farið yfir kjörtímabilið sem nú er senn á enda. Jón sagði þar opinskátt frá aðferðafræði sinni í stjórnmálum, hvernig hann þykist stundum vita minna en hann veit í raun og hvernig hann notar gleði og húmor til þess að ná til andstæðinga sinna. Auk viðtalsins í Vice var tvívegis rætt um borgarstjórann í spjallþættinum The Late Show with Craig Ferguson sem sýndur er á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. Fyrst var rætt um Jón þann 23. apríl. Þá var hinn frægi grínisti Eddie Izzard í heimsókn hjá Ferguson og ræddu þeir um borgarstjóra Reykvíkinga og sögðust virkilega ánægðir með hann. Ferguson sagðist, í gleðitóni, ætla að bjóða sig fram til þings. Þáttinn má sjá hér að neðan.Anarkistinn að flytja til Texas Í viðtalinu sem birtist á vef Vice segir Jón frá því að hann haldi að hann muni flytjast til Texas í náinni framtíð. Blaðamaðurinn skilgreinir Jón sem anarkista, grínista og borgarstjóra í fyrirsögn viðtalsins. Jón segist halda að hann muni flytjast til Texas, en segist ekki vita það. Jón segir í viðtalinu að hann trúi mikið á tilviljanir. „Fólk segist oft ekki trúa á tilviljanir. En ég trúi á þær. Ég trúi ekki á Guð. Ég trúi mjög sterkt á tilviljanir og ég er ekki viss um að við höfum í raun frjálsan vilja. Ég veit ekki hvort heilinn minn er búinn að taka einhverjar ákvarðanir um hvað sé næst á dagskrá. En mig grunar sterklega – sem er mjög skrýtið – að ég sé á leiðinni til Texas. Ég hef aldrei farið þangað. Fyrir mér er Texas eins og Mordor,“ segir borgarstjórinn og vísar í Hringadróttinssögu JR Tolkien.The Wire og tilraunin Frægt er að Jón fór fram á að aðrir stjórnmálamenn horfðu á alla þættina af The Wire, áður en stjórnarmyndunarviðræður hæfust. Í viðtalinu segir Jón að hann hafi viljað sjá hvort að aðrir tækju þessa hugmynd hans alvarlega. „Ég velti því fyrir mér hvort þeir myndu undirbúa sig fyrir spurningar upp úr þáttunum.“ Í viðtalinu segir Jón einnig frá því að hann hafi jafn gaman af mannfólki og tölvunördar hafi af tölvum. „Og ef mér finnst einhver manneskja vera ógnandi þá er örugglega bara eitthvað að vélbúnaðinum í henni.“Borgarstjórinn horfir upp til Bruce Lee Jón segir frá því að vera hans í stjórnmálum hafi verið eins konar tilraun. „Ég horfði til Bruce Lee. Sem ég lít mikið upp til. Ég dýrka manninn, sögu hans og hvernig hann varð til. Hann kom inn í mjög erfiðar aðstæður í Bandaríkjunum. Ekki aðeins sem asískur maður í Bandaríkjunum, hann var nefnilega líka gagnrýndur af löndum hans, frá Kína, sem sökuðu hann um að kenna öðrum en Kínverjum Kung-Fu. En hann náði að sanna sig og verða ofurhetja.“ Jón segir sögu Bruce Lee hafa hvatt hann áfram og bendir á að með því að hafa farið í stjórnmál hafi hann verið að stíga inn í aðstæður sem voru honum erfiðar. „Alla mína tíð hafði ég verið í kringum fólk sem var með svipaðar skoðanir og svipað gildismat en ég. Að stíga inn í stjórnmálin var áskorun fyrir mig og ég vissi að mér yrði illa tekið. Í raun vanmat ég hversu illa mér var tekið, ég vissi ekki að grimmdin yrði svona mikil.“ Jón líkir fjárhagslegu ástandi Reykjavíkur við Detroit í Bandaríkjunum. „Reykjavík hefði hæglega getað orðið gjaldþrota,“ og bætir við að jafn lítið hagkerfi og á Íslandi hefði einfaldlega ekki þolað það. Jón segist hafa svarað gagnrýnisröddum á heimspekilegum nótum. „Þegar einhver sagði að okkur myndi aldrei takast að laga fjárhaginn, spurði ég hvað þýðir „aldrei“? Ég sagði þeim að „aldrei“ vísaði til eilífðar. Og allt í einu vorum við farin að ræða eilífðina í borgarstjórn.“ Jón segir svona umræður hafa verið nauðsynlegar svo gæti þraukað í borgarstjórn. „Við vorum orðin eins og Einstein, að ræða tímann. Svona hélt ég lífi í þessum umræðum.“„Ég hef heyrt um þennan borgarstjóra“ Þann 23. Apríl ræddu grínistarnir Eddie Izzard og Craig Ferguson um Jón í þættinum The Late Night Show with Craig Ferguson. „Hefuru heyrt um þennan borgarstjóra í Reykjavík?“ spyr Craig Ferguson og Eddie Izzard svarar játandi. Ferguson bætir við „hann virðist vera algjör topp maður,“ og gerir tilraun til þess að segja nafn Jóns Gnarr. „Ég er mjög heillaður af honum,“ bætir Ferguson við. Félagarnir fara svo að ræða framboð grínista og Ferguson fullyrðir að hann ætli sér að fara í þingframboð – en greinilegt er að þær fullyrðingar eru allar á léttu nótunum. Viku eftir heimsókn Izzards kom Jim Gaffigan til Ferguson (þeir byrja að ræða um Jón Gnarr og Ísland eftir rúmar 25 mínútur). Þeir ræddu um heimsókn hans til Íslands. Í þættinum segir Gaffigan frá því að hann hafi reynt að ná sambandi við Jón en ekkert gengið. Hann ræddi einnig um fegurð landsins og einkennilega siði – eins og að borða sviðakjamma. Hér að neðan má sjá heimsókn Eddie Izzards til Ferguson. Þeir byrja að ræða um Jón Gnarr eftir um 25 mínútur og 30 sekúndur. Einnig má sjá tíst Lady Gaga um Jón Gnarr þar fyrir neðan. @buysexxual I love the mayor of Iceland— Lady Gaga (@ladygaga) October 23, 2012
Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um reyk í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Sjá meira