Sport

Brynjar Jökull setur klossana upp í hillu

Brynjar Jökull á ferðinni á ÓL i Sotsjí.
Brynjar Jökull á ferðinni á ÓL i Sotsjí.
Einn fremsti skíðakappi landsins og Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guðmundsson hefur ákveðið að henda klossunum og skíðunum upp í hillu.

Hann tilkynnti um þessa ákvörðun sína á Facebook í dag. Þar kemur fram að hann hafi verið að bræða þetta með sér í talsverðan tíma.

Brynjar Jökull tók þátt á ÓL í Sotsjí og verður söknuður af honum í brekkunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×