Tónlist

Handbolti í Skaftahlíð

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Tónlist Creed er tekið opnum örmum á fréttastofunni.
Tónlist Creed er tekið opnum örmum á fréttastofunni. vísir/getty
Skoðanir manna eru misjafnar. Þessi fullyrðing hefur bundið enda á fjölmargar rökræður í gegnum tíðina. Það sem sumum finnst gott finnst öðrum slæmt. Þannig er það bara. En svo eru hlutir sem við sammælumst öll um að séu slæmir. Nasismi, hælsæri, að drekka appelsínusafa eftir tannburstun, já og hljómsveitin Creed. Það hélt ég að minnsta kosti.

Alvarlegt atvik kom upp hér á fréttastofunni á þriðjudag. Leiðindamál sem gæti grafið undan trúverðugleika okkar allra. Ég sat í mötuneytinu að japla á hádegismatnum mínum þegar það gerðist. Þegar ekki einn, ekki tveir, heldur þrír samstarfsmenn mínir lýstu dálæti sínu á Creed. Eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég ætla ekki að nafngreina mennina af tillitssemi við aðstandendur þeirra, en allir voru þeir á því að Creed væri alveg hreint ljómandi góð hljómsveit.

Ég sendi tölvupóst um málið til minna yfirmanna og afrit af póstinum á alla fréttastofuna. Ég er vanalega ekki "sá sem kjaftar frá" en þarna blöskraði mér algjörlega. Heitar umræður spunnust um málið þar sem einhverjir sögðu það vera augljósa brottrekstrarsök. Sjálfur var ég hófstilltari og lagði til að þremenningarnir yrðu settir til hliðar um stundarsakir.

En síðan skriðu undan steinum enn fleiri sem virtust aðhyllast þessar viðurstyggilegu skoðanir þeirra, og aðrar náskyldar. Einn viðurkenndi ást sína á hljómsveitinni Nickelback á meðan annar rifjaði glaður í bragði upp lagið Outside með þeim Fred Durst og Aaron Lewis. Sá þriðji kvartaði sáran undan einelti í garð þessara hljómsveita, bæði á internetinu og víðar. Hvaða fólk er þetta? Látum vera ef þetta hefði komið frá íþróttadeildinni, en þetta voru meira og minna almennir fréttamenn.

Enn bíð ég eftir viðbrögðum yfirmanna minna. Handboltinn er hjá ykkur. Verður þetta virkilega látið viðgangast?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×