Handbolti

Systur á verðlaunapalli í Sotsjí

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Systurnar Chloe, til hægri, og Justine.
Systurnar Chloe, til hægri, og Justine. Vísir/Getty
Kanadísku systurnar Justine og Chloe Dufour-Lapointe fengu gull og silfur í hólasvigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí.

Yngri systirin, Justine, vann gull en hún er nítján ára gömul. Hún fékk 22,44 stig í úrslitaumferðinni en Chloe lenti í smávægilegum vandræðum eftir síðara stökkið sitt og varð að sætta sig við silfur.

Hannah Kearny frá Bandaríkjunum fór síðust niður í úrslitunum en náði ekki að slá við systrunum, þar sem hún fór illa að ráði sínu í fyrra stökki ferðarinnar. Hún gerði þó nógu vel til að næla sér í brons.

Aiko Uemura endaði í fjórða sæti, rétt eins og á leikunum í Vancouver fyrir fjórum árum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×