Handbolti

Rúnar: Leiðinlegt að geta ekki sýnt betri leik

Henry Birgir Gunnarsson í Herning skrifar
Rúnar á ferðinni í kvöld.
Rúnar á ferðinni í kvöld. vísir/daníel
Leikurinn í kvöld reyndist hinum ungu og öflugu leikmönnum Íslands erfiður. Rúnar Kárason var einn þeirra sem náði sér ekki á strik í kvöld en það á reyndar við um flesta leikmenn liðsins.

"Það er mjög erfitt að spila hérna á móti þeim. Við eigum samt að geta gert betur. Þetta var einn af þessum dögum þar sem hlutirnir falla hrikalega með þeim en ekki með okkur," sagði Rúnar svekktur.

"Þeir eru með mikinn meðbyr með sér og komnir á svakalega siglingu. Þetta er orðin eins og smurð vél hjá þeim núna. Það var leiðinlegt að geta ekki sýnt betri leik hérna í kvöld."

Strákarnir spiluðu vel í fyrri hálfleik og hefðu þeir nýtt betur færin hefðu þeir staðið vel að vígi eftir fyrri hálfleikinn.

"Því miður förum við illa að ráði okkur. Strákurinn í markinu vildi fá að sýna sig og það gekk eftir hjá honum. Það er kannski farið að síga í hjá okkur en það er samt engin afsökun."

Hlutskipti Íslands verður að spila um fimmta sætið á föstudag sem er frábær árangur.

"Það munar mjög litlu í þessu hjá okkur. Ef við hefðum unnið Ungverjana hefði verið meiri séns að fara í undanúrslit. Við getum samt gengið sáttir frá borði og þurfum að taka síðasta leikinn með trompi."


Tengdar fréttir

Guðjón Valur: Getum verið stoltir af þessum árangri

"Þeir voru að hvíla lykilmenn hjá sér og við vorum líka að rúlla mikið. Við lentum bara í vandræðum og á vegg í síðari hálfleik," sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson eftir tapið gegn Dönum í Boxen í kvöld.

Allt var Dönum í hag | Myndir

Ísland tapaði fyrir Danmörku í lokaleik milliriðlakeppninnar á EM í handbolta, 32-23, þar sem heimamenn í Herning fóru á kostum fyrir troðfullri höll.

Aron: Þeir refsuðu okkur

"Ég myndi ekki segja að þetta væri munurinn á liðunum en í dag lendum við í því að gera okkur seka um að klúðra mörgum færum í fyrri hálfleik," sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari svekktur eftir tapið gegn Dönum.

Sverre: Það þarf enginn að skammast sín

"Þeir spiluðu mjög vel og það kom engum á óvart. Við vissum vel við hvaða lið við vorum að fara að spila. Það var því leiðinlegt að ná ekki að stöðva þá betur," sagði varnartröllið Sverre Andreas Jakobsson eftir tapið gegn Danmörku í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×