Lífið

Justin Bieber handtekinn fyrir ofsaakstur

Finnur Thorlacius skrifar
Justin Bieber, ef til vill ekki að gera skandal!
Justin Bieber, ef til vill ekki að gera skandal!
Hann Justin Bieber er ekki mikið í fjölmiðlum fyrir tónlsit sína heldur nær einungis fyrir asnaprik sín sem orðin eru óteljandi. Nýjasta uppátæki hans á þriðjudaginn síðasta var að þeysa um á Lamborghini bíl sem hann leigði í Flórída á langt frá því löglegum hraða. Ekki nóg með að hann æki eins og vitleysingur þá var hann undir áhrifum fíkniefna.

Hann var handtekinn af lögreglunni og situr víst ennþá inni fyrir tiltækið. Justin Bieber og bílar eiga ekki sérstaklega góða samleið, en hann á ágætis safn mjög öflugra sportbíla sem hann stunum lætur mála í fáránlegum litum og mynstrum. Hann á til að mynda alkrómaðan Fisker Karma rafmagnsbíl og Audi R8 sem málaður er með hlébarðamynstri. Hvorugur þeirra hefur höfðað mjög til annarra bílaáhugamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×