Lífið

Brosandi á fangamyndinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Poppprinsinn Justin Bieber var handtekinn á þriðjudaginn fyrir að aka Lamborghini-bifreið sinni alltof hratt og að vera undir áhrifum fíkniefna. 

Að sögn lögregluþjóns sem handtók Justin blótaði söngvarinn mikið og vildi alls ekki láta handtaka sig. 

Annað hljóð var í Justin þegar á lögreglustöðina var komið og er hann skælbrosandi á fangamyndinni.

Árið byrjar ekki vel hjá söngvaranum sem komst í kast við lögin fyrr í mánuðinum eftir að hann henti eggjum í hús nágranna síns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×