Handbolti

Aron Rafn er ofarlega á báðum listum hjá markvörðunum á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Rafn Eðvarðsson.
Aron Rafn Eðvarðsson. Vísir/Daníel
Aron Rafn Eðvarðsson, annar tveggja markvarða íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku, varð meðal efstu manna á báðum tölfræðilistum markvarðaanna í riðlakeppni EM.

Aron Rafn endaði í fjórða sæti yfir bestu hlutfallsmarkvörsluna (41 prósent) og varð í öðru sæti yfir bestu vítamarkvörsluna (50 prósent).

Norðmaðurinn Magnus Dahl hefur varið 47 prósent þeirra skota sem hafa komið á hann á mótinu og var hann með bestu hlutfallsmarkvörsluna í riðlakeppninni samkvæmt tölfræði mótshaldara.

Jafnir í 2. sæti eru síðan Svíinn Mattias Andersson og Spánverjinn José Manuel Sierra sem báðir vörðu 43 prósent af þeim skotum sem komu á þá í leikjunum þremur í riðlakeppninni.

Aron Rafn er síðan fjórði eins og áður sagði en hann varð 13 af 32 skotum sem hann reyndi við. Björgvin Páll Gústavsson varði 30 prósent skota sem komu á hann en hann er í 19. sæti á listanum.

Það var bara einn markvörður með betri markvörslu í vítum í riðlakeppninni en Aron Rafn.  Spánverjinn Gonzalo Pérez de Vargas varði 3 af 5 vítum sem hann reyndi við sem gerir magnaða 60 prósent hlutfallsmarkvörslu í vítum.

Aron Rafn varði 2 af þeim 4 vítum sem hann reyndi við sem gerir 50 prósent vítamarkvörslu en í þriðja sæti er síðan Króatinn Mirko Alilović sem varði 4 af 9 vítum í riðlakeppninni eða 44 prósent.

Björgvin Páll varði 2 af 6 vítum sínum sem skilaði honum í 7. sætið með 33 prósent vítamarkvörslu.


Tengdar fréttir

Króatar með fjögur stig inn í milliriðil

Króatar unnu eins marks sigur á Svíum, 25-24, í úrslitaleik D-riðils á Evrópumótinu í handbolta í kvöld en þetta var í raun fyrsti leikur liðanna í milliriðli.

Gaupi fór yfir EM með þeim Ásgeiri, Rúnari, Aroni og Canellas

Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður á Stöð tvö, fékk menn til að fara yfir frammistöðuna í riðlakeppninni og meta möguleika íslenska handboltalandsliðsins í milliriðlinum á EM í Danmörku en fyrsti leikur Íslands er á móti Austurríki á morgun.

Strákarnir komnir til Herning

Strákarnir okkar hefja leik í milliriðli EM á morgun. Þeir fluttu sig frá Álaborg í dag yfir til smábæjarins Herning en þar er engu að síður flottasta handboltahöll Danmerkur, Jyske Bank Boxen eða bara Boxið.

Bara einn "grófari" en Sverre á EM

Sverre Jakobsson, varnartröll íslenska landsliðsins, hefur fengið fimmtán refsistig í fyrstu þremur leikjum íslenska landsliðsins á EM í handbolta í Danmörku.

Frakkar sendu Serba heim - Pólverjar og Rússar áfram

Frakkland fer með fullt hús inn í milliriðil tvö eftir þriggja marka sigur á Serbum í kvöld, 31-28, í lokaleik C-riðils á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku. Serbar eru aftur á móti á heimleið eftir riðlakeppnina aðeins tveimur árum eftir að þeir fóru alla leið í úrslitaleik EM.

Ísland á tvo menn meðal þeirra fimm markahæstu á EM

Ísland átti tvo af fimm markahæstu leikmönnum riðlakeppninnar á EM í handbolta en henni lauk í kvöld með leikjum í C- og D-riðli. Milliriðill eitt fer síðan af stað á morgun og þá á Ísland leik á móti Austurríki.

Patrekur með í fótbolta á æfingu Austurríkismanna - myndir

Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska handboltalandsliðsins, og Patrekur Jóhannesson, þjálfari austurríska landsliðsins, eru mættir með lið sín til Herning en Ísland og Austurríki mætast á morgun í fyrstu umferð milliriðils eitt á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×