Innlent

Charlie Sheen á Íslandi

Elimar Hauksson skrifar
Á myndinni má sjá leikarann stilla sér upp við álfabæinn ásamt kærustu sinni, Brett Rozzi.
Á myndinni má sjá leikarann stilla sér upp við álfabæinn ásamt kærustu sinni, Brett Rozzi. Twitter/Charlie Sheen
Samkvæmt Twitter síðu leikarans Charlie Sheen er hann kominn aftur til Íslands. Þar hrósar hann meðal annars álfabænum Hafnarfirði og segist hafa heimsótt Bláa Lónið.

Birtir hann mynd af sér og kærustu sinni, Brett Rozzi við skiltið að „Álfabæ“ og þakkar hann fyrir sig. „Takk fyrir Bláa lónið, takk fyrir Ísland, takk fyrir Omar, takk fyrir Bær álfanna," skrifar leikarinn á Twitter síðu sinni.

Þá hafa einhverjir Íslendingar séð til leikarans eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og virðist því staðfest að leikarinn og Íslandsvinurinn sé aftur kominn til landsins.

Mynd/Facebook



Fleiri fréttir

Sjá meira


×