Lífið

Honey Boo Boo í bílslysi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Honey Boo Boo og fjölskylda hennar eru að jafna sig eftir alvarlegt bílslys í McIntyre í Georgíu á mánudaginn.

Faðir Honey Boo Boo, Sugar Bear, var að beygja til vinstri þegar annar bíll klessti á hann. Auk Honey Boo Boo og Sugar voru Mama June, Pumpkin og Chubbs öll í bílnum. Mama June hefur sent frá sér yfirlýsingu um málið.

„Við lentum í bílslysi í gærkvöldi eins og margir hafa frétt. Það var mjög ógnvekjandi því þetta var í fyrsta sinn sem við höfðum lent í bílslysi. Við erum aum í dag en eina málið á dagskrá er að halda upp á afmæli Pumpkin. Hún varð fjórtán ára í dag og við ætlum út að fagna, sama hve aum við erum. Við viljum þakka öllum fyrir stuðninginn og heillaóskirnar.“

Honey Boo Boo vakti fyrst athygli í þáttunum Toddlers & Tiaras sem fjallaði um þátttakendur í barnafegurðarsamkeppnum. Eftir að hún hætti að taka þátt í fegurðarsamkeppnum fékk hún sinn eigin raunveruleikaþátt, Here Comes Honey Boo Boo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×