Sport

Gamlárshlaup ÍR í 38. sinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Árlegt gamlárshlaup ÍR fer fram í 38. sinn í dag en ræst verður á Sæbrautinni fyrir utan Hörpuna á hádegi. Hlaupaleiðin er 10 km löng og verður hægt að skrá sig þar til stundarfjórðungi fyrir ræsingu.

Fjölmargir hafa þó forskráð sig á vefnum og má gera ráð fyrir góðri þátttöku í dag. Í fyrra tóku tæplega eitt þúsund hlauparar þátt en sú hefð hefur skapast að keppendur og heilu hóparnir hlaupi í búningum. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin en einnig bestu búningana.

Þetta er í þriðja sinn sem hlaupið er ræst við Hörpuna og lýkur því á sama stað. Lokað verður fyrir umferð á nokkrum stöðum en bílstjórar eru engu að síður hvattir til að sýna aðgát og tillitssemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×