Jól

Hollt góðgæti fyrir jólin

Elín Albertsdóttir skrifar
Sigrún hefur einstakt lag á að gera hollan mat góðan.
Sigrún hefur einstakt lag á að gera hollan mat góðan.
Gómsætt Sigrún Þorsteinsdóttir heldur úti vefsíðunni Cafe Sigrún þar sem hún birtir uppskriftir að alls kyns hollustugóðgæti. Sigrún gefur hér lesendum uppskriftir að hollu góðgæti fyrir jólin.

Piparkökurnar voru smá tilraun sem heppnaðist bara ansi vel. Þær eru kryddaðar og með svolitlum appelsínukeim en það má sleppa appelsínunum ef þið viljið,“ segir Sigrún sem gefur hér uppskrift að piparkökum.

piparkökur
Piparkökur

Gerir 20-25 stykki



1 tsk. appelsínubörkur,

rifinn fínt á rifjárni

160 g hrísmjöl (enska:

rice flour)

1 tsk. vínsteinslyftiduft

1 tsk. kanill

 0,5 tsk. negull (enska:

cloves)

4 msk. kókosolía

70 g rapadura-hrásykur

(eða annar hrásykur)

50-100 ml sojamjólk

(eða önnur mjólk)

Aðferð

1. Rífið appelsínubörkinn fínt á

rifjárni. Gætið þess að rífa aðeins appelsínugula hlutann,

ekki þann hvíta.

2. Í stóra skál skuluð þið sigta

saman hrísmjöl, lyftiduft, kanil og negul. Bætið appelsínuberkinum út í og hrærið vel.

3. Í aðra skál skuluð þið hræra saman kókosolíu, 50 ml af sojamjólk og rapadura-hrásykri þannig að úr verði mjúk blanda. Hellið út í stóru skálina og hrærið vel. Ef deigið er mjög þurrt bætið þá meira af sojamjólk út í.

4. Hnoðið deigið í stóra kúlu. Skiptið deiginu í fjóra hluta og mótið pylsur í höndunum. Pakkið pylsunum inn í plastfilmu og setjið í ísskápinn. Geymið í klukkustund eða yfir nótt.

5. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu. Skerið pylsurnar í 1-1,5 cm bita og raðið á bökunarplötuna.

6. Mótið bitana aðeins ef þarf (þannig að þeir verði kringlóttari).

7. Bakið við 180°C í um 15 mínútur.

valhnetu- og hunangsnammi
Valhnetu- og hunangsnammi



Valhnetur eru afar hollar og hjálpa til við að sporna við hjartasjúkdómum. Sesamfræin eru kalkrík og innihalda einnig holla fitu. Skipta má út valhnetum fyrir pekanhnetur.

Gerir 10-12 stykki



50 g valhnetur, saxaðar

mjög smátt

35 g kókosmjöl

1,5 msk. carob

60 ml agavesíróp eða

acacia-hunang

50 g sesamfræ eða

kókosmjöl (gæti þurft

meira)

Aðferð

1. Saxið valhneturnar mjög smátt. Setjið í skál.

2. Bætið agavesírópi og carobi út í skálina og hrærið vel. Kælið deigið í um 30 mínútur.

3. Mótið litlar kúlur í höndunum (gott að nota plasthanska).

4. Veltið upp úr sesamfræjum eða kókosmjöli.

5. Kælið.






×