Lífið

Bætir fimmta húðflúrinu við

Fyrirsætan Cara Delevingne lét flúra nafn móður sinnar á vinstri handlegg sinn á tískuvikunni í New York fyrir stuttu.
Fyrirsætan Cara Delevingne lét flúra nafn móður sinnar á vinstri handlegg sinn á tískuvikunni í New York fyrir stuttu. Instagram
Fyrirsætan Cara Delevingne fékk sér nýtt húðflúr þegar hún var viðstödd tískuvikuna í New York fyrir stuttu.

Delevingne fór ásamt vinkonu sinni á eina frægustu tattústofu í New York, Bang Bang Tattos og lét húðflúrmeistarann Keith McCurdy flúra á sig nafn móður sinnar, Pandora, á vinstri upphandlegginn.

Mcurdy hefur flúrað stjörnur á borð við Chris Brown, Katy Perry og Justin Bieber.

Delevingne er því komin með fimm húðflúr en hún lét flúra, Made In England, á il hægri fótar fyrir ekki svo löngu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×