Bíó og sjónvarp

Bíður eftir að íslenskir leikstjórar hafi samband

Sara McMahon skrifar
Atli Bollason fer með aðalhlutverkið í stuttmynd sem frumsýnd verður á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Atli Bollason fer með aðalhlutverkið í stuttmynd sem frumsýnd verður á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto. Fréttablaðið/Daníel
„Myndin var tekin upp yfir frekar langan tíma. Við byrjuðum í Detroit fyrir einu og hálfu ári, svo var eitthvað skotið í Toronto, Berlín og í Frakklandi. En sagan sjálf gerist að mestu á ótilgreindum stað í Bandaríkjum Norður-Ameríku,“ segir Atli Bollason. Hann fer með aðalhlutverkið í kanadísku stuttmyndinni Numbers & Friends, sem valin var til sýningar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto sem fram fer í september.

Leikstjóri myndarinnar er Kanadamaðurinn Alexander Carson, en honum og Atla er vel til vina. „Ég kynntist Alexander þegar ég bjó í Montreal, þar sem ég var við nám. Ég hef áður leikið í mynd eftir hann og það samstarf gekk mjög vel.“

Numbers & Friends segir frá ungum Evrópubúa sem flyst til Norður-Ameríku og reynir að fóta sig í nýju og framandi umhverfi. „Ég leik bara í myndinni, en mig grunar að Alexander hafi notað glefsur úr mínu lífi þegar hann skapaði persónuna,“ segir Atli og hlær.





Game of Thrones mikill leiksigur

Hann verður ekki viðstaddur frumsýningu myndarinnar í Toronto sökum tímaleysis, en segist vona að hann fái tækifæri til þess að fylgja henni á næstu hátíð. Atli er bókmenntafræðingur að mennt en hefur einnig látið til sín taka á sviði leiklistar. „Ég hef leikið í þessum tveimur myndum hans Alexanders og einnig á sviði í Montreal. Svo var ég aukaleikari í Game of Thrones, það var mikill leiksigur. Nú bíð ég bara eftir því að íslenskir leikstjórar taki við sér og fari að hafa samband,“ segir hann að lokum í gamansömum tón.

Kvikmyndahátíðin í Toronto var stofnsett árið 1976. Hátíðin er ein sú stærsta í heimi og í fyrra sóttu um 400 þúsund manns hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×