Fastir pennar

Alþingislimrur

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð hét drengur

en þjóð sinni þóttist hann fengur.

Hann drakk Mountain Dew,

saug íslenska kú

og Jónas frá Hriflu hel-kengur.

Þótt skammstafanirnar ei skildi

hann útlendingana ei vildi

Ekkert E og ESS BÉ

eða A GÉ ESS fé.

Aðeins íslenska aurinn hann þyldi.

Hann þjóðsönginn baulaði bráðvel

er fingurinn fetti til Brussel.

Svo lofað'ann öllum

konum og köllum

ávísun fínni sem flauel.

Á Bessastöðunum bjó búkarl

sem taldi sig stakasta stórjarl.

Valdsprota veifaði

og Sigmund hann blessaði

er át kynhreinan mjúkís

í kvöldsnarl.

En keisarinn klæddist ei neinu

því fjárkistan var öll í kleinu.

Heimilin biðu

er stjórnvöld þeim riðu.

En vinum þau veitt' ekki skeinu.

Hádegismóum í hann Davíð

spann upp á nýtt fagra fortíð.

ELL, Í og Ú

hann var eins og frú

sem tottaði húsbóndann taumþýð.

Bjarni hét strengja hans brúða

sem sýnd' af sér hollustu prúða.

Sjálfstæðismenn

yrðu nú senn

allt innan ríkis herbúða.

Dómarar, herrar og hirðmenn,

ambassadorar og amtmenn.

Bitlingahaf

í bólakaf

færð' alla trúfasta flokksmenn.

Fjöllin og fossa og læki

þeir fengu að gjöf gegnum klæki.

Silfrið í sæ

þeir hirtu sem hræ

og hunsuðu skrílsins hópskræki.

Umhverfisráðherra sjálfan

sig harður skar niður um hálfan.

Allt átt' að virkja

en ekkert að yrkja

svo brúnirnar hóf öll heimsálfan.

Útlanda ráðherra, smalinn

var náskyldur Söru Palin.

Hann kunn? ekki ensku

né aðra útlensku

og vild' ekki skilja við dalinn.

Stjórnarandstaða með veggjum

læddist á veikburða leggjum.

Árni Páll datt

en Steingrímur hratt

hyglaði héraðs flokksseggjum.

Píratar, þings gúddí gæjar,

vildu gagnageymslurnar

gegnsæjar,

veraldarvef

og ekkert þref.

Þá í kviklega fingurna klæjar.

En Alþingi vild' engu breyta

og virðingu vanans varðveita.

Moska, nei takk

Snowden, oj bjakk.

Hvorki Kana né kirkju áreita.

Nú þingheimur farinn í frí er

svo rekur á reið' okkar útsker.

Á blautri baðströnd

þjóðin með önd

í hálsinum bíður á bömmer.

Ég fær' ykkur ambögu þessa

að skilnaði, pen sem loftpressa.

Í bili ég kveð

er barni út treð.

Með haustinu aftur mun messa.

Pistlahöfundur heldur nú í barneignarleyfi og kveður því að sinni. Lesendum er þökkuð samfylgdin síðustu ár.






×