Matur

Helgarmaturinn - Sumarlegt lakkríslamb

Sandra Björg Gunnarsdóttir.
Sandra Björg Gunnarsdóttir.

Sandra Björg Gunnarsdóttir viðskiptafræðinemi og þjónn á Tilverunni er mikill sælkeri og elskar að búa til góðan mat. Hún deilir hér með Lífinu skemmtilegri uppskrift að lakkríslambi.

Fyrir 6 manns:

900 g lambafilet með fitunni

Lakkríssalt frá Saltverk

Grófmalaður pipar

sólblómaolía

Sumarsalat:

Klettasalat eða annað bragðgott kál

1 lítil askja jarðarber

¼ melóna, gul eða rauð

Kartöflusalat:

6 stórar kartöflur

½ rauð paprika

1 klípa fersk basilika

½ tsk. grófmalað salt

10% sýrður rjómi

Dressing:

½ gúrka

Safi úr ¼ sítrónu

Smá sýrður rjómi

Eftir að hafa skellt kartöflunum í pott (láta sjóða í um 40 mín.) byrjaði ég á að skera þvert í fituna á lambinu og nudda það með 3-4 tsk. af lakkríssalti og skvettu af sólblómaolíu. 

Ofninn stilli ég á 200°C. Ég vil líka benda á að nota ekki ólívuolíu því hún brennur við mun minni hita en sólblómaolía.

Ég blandaði saman gúrku, sýrðum rjóma og sítrónusafa með töfrasprotanum þar til allt var orðið vel maukað. Því næst skar ég niður soðnar kartöflur, saxaða basiliku og papriku. Öllu var blandað saman með sýrða rjómanum og smá salti. Skellti því svo í kæli.

Lambið var piprað og steikt við fullan hita í 2-3 mín. á hvorri hlið á pönnu(fituna niður) og sett svo í ofn í eldfast mót. Lambið má svo vera í 8-15 mín. í ofninum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×