Innlent

Eftirlitsmyndavélar í strætó

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Fyrirhugað er að setja upp öryggismyndavélar í alla strætisvagna við reglubundna endurnýjun þeirra á komandi árum. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs, segir að slíkt kerfi sé nú þegar til staðar í einum vagni til prófunar og hafi gefið góða raun.

Reynir segir dæmin sýna að öryggismyndavélar geti komið að gagni en ofbeldi beinist að vagnstjórum og farþegum í vaxandi mæli. „Það hefur komið upp að vagnstjórar hafa orðið fyrir árás, allt frá því að kastað er yfir þá hveiti yfir í að þeim sé ógnað með vopni. Síðan er alltaf þetta hefðbundna skítkast á vagnstjórana við lýði. Þeir eru kallaðir aumingjar og þar fram eftir götunum. Oftast eru þetta drukknir einstaklingar eða fólk í annarlegu ástandi en þetta er þá liður í því að bregðast við þessari þróun."

Mikill kostnaður felst í því að setja upp kerfið en kostnaðurinn er hátt í 600 þúsund á hvern vagn. Reynir segir ekki hagkvæmt að setja upp öryggismyndavélar í vagnana sem nú þegar eru í notkun þar sem mikill kostnaður felst í því að setja búnaðinn upp sem og að núverandi vagnar séu nokkuð komnir til ára sinna.

Reynir segir að hugmyndin hafi mætt andstöðu hjá vagnstjórum. „Tilgangurinn er ekki að njósna um vagnstjóra. Hins vegar tekur kerfið upp samskipti á milli vagnstjóra og farþega og því væri hægt að nota myndskeiðið gegn þeim ef þeir koma illa fram við farþega. Þetta er því mjög viðkvæmt og þarf að undirbúa það mjög vel. Það er mikilvægt að allir starfsmenn séu fullkomlega upplýstir um að þeir eru í mynd."

Reynir segir að í flestum nágrannalöndum okkar séu öryggismyndavélakerfi í strætisvögnum en ýmis vandkvæði fylgi þó slíkri uppsetningu. „Það eru persónuverndarsjónarmið sem hafa þarf í huga en með þessari breytingu breytist allt í starfsumhverfi okkar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×