Allir sungu með í Póllandi 10. febrúar 2013 10:00 x
Hljómsveitin Bloodgroup sendi frá sér sína þriðju plötu nú í vikunni, Tracing Echoes. Janus Rasmussen og Sunna Þórisdóttir söngvarar sveitarinnar segja Evróputúr á döfinni í apríl. Janus Rasmussen og Sunna Þórisdóttir taka boði um kaffi fegins hendi þegar þau mæta til fundar við blaðamann Fréttablaðsins að morgni föstudags. „Við vorum að æfa til klukkan fimm í nótt í stúdíóinu okkar, við erum spila á opnunarkvöldinu á Volta í kvöld [í gærkvöldi],“ upplýsa þau. „Við erum líka alltaf mjög lengi að finna út úr því og ákveða hvernig við ætlum að spila lögin okkar á tónleikum. Tónlistin okkar er raftónlist og ekkert augljóst hvernig á að flytja lögin læf,“ segir Janus. „Við gætum náttúrulega bara stungið disk í og mæmað,“ segir Sunna og hlær. „En við myndum samt aldrei gera það, það væri hrikalega leiðinlegt.“Á leið í tónleikaferð Aðdáendur sveitarinnar fengu að heyra nokkur af nýju lögunum af plötunni Tracing Echoes á Airwaves síðastliðið haust en gefst færi á að heyra meira á tónleikum Bloodgroup á Sónar-tónlistarhátíðinni sem haldin verður næstu helgi og svo verða útgáfutónleikar í Reykjavík og á Akureyri í mars. Þá tekur mánaðartónleikaferð um Evrópu við. „Við tökum rosalegan túr í Evrópu í apríl, það verður spennandi,“ segir Sunna sem er orðin ýmsu vön en eftir að hún gekk til liðs við Bloodgroup tók við mesta tónleikaár sveitarinnar. „Við fórum til nær 30 landa 2011, þar af 15 í mánaðarlangri Evrópuferð. Það var frekar mikið,“ segir hún. „Við stoppuðum varla nema til að taka bensín.“ Var þetta mikið djamm eða bara puð? „Við vorum nokkuð öflug í því svona fyrri hluta tónleikaferðarinnar 2011 en svo sáum við bara að þetta gekk ekki. Maður hefur ekkert úthald í að djamma og spila í margar vikur,“ segir Janus.Unnu plötuna hratt Hvar er svo skemmtilegast að spila? „Pólland er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Við höfum spilað víða þar, en þegar við gerðum það fyrst árið 2011 komumst við að því að þar áttum við stóran aðdáendahóp. Það kunnu allir lögin og við fengum ótrúlega góð viðbrögð og þakkir fyrir tónleikana,“ segir Sunna. Eftir langa tónleikahrinu sem teygði sig yfir á árið 2012 tóku liðsmenn þá ákvörðun að setja saman nýja plötu. „Við unnum hana frekar hratt þegar við tókum okkur til, byrjuðum í maí og kláruðum hana í haust.“ Þau segja lögin unnin í mikilli samvinnu hljómsveitarmeðlima en hana skipa auk Janusar og Sunnu þeir Hallur og Ragnar Láki Jónssynir sem stofnuðu sveitina með Janusi og systur sinni Lilju.Hætti í skóla fyrir Bloodgroup Sunna var svo kölluð til árið 2011 en þá var hún í MH og söngnámi í FÍH. „Þeir hringdu í mig og buðu að prófa að syngja með sér. Ég lærði þrjú lög fyrir æfingu daginn eftir og það gekk mjög vel. Ég hafði einmitt verið að hugsa um það hversu mikið mig langaði til að breyta til og stökk á þetta tækifæri, hætti í skólanum og fór í tónleikaferðalag.“ Sunna var átján þegar þetta var og ákvörðunin mætti fullum skilningi foreldra hennar. „Pabbi, Þórir Baldursson, hætti í skóla til að sinna tónlistinni þannig að hann skildi þetta vel.“ Einu vandræðin sem ungur aldur hefur skapað henni er snúin staða á tónleikaferð í Bandaríkjunum. „Þegar við vorum að spila í LA þá mátti ég ekki vera með strákunum í sándtékkinu og svo þegar við vorum að spila var mér fylgt inn bara rétt í þann mund sem tónleikarnir voru að byrja og svo send út strax að þeim loknum,“ rifjar Sunna upp en 21 árs aldurstakmark er á vínveitingastaði í Bandaríkjunum. Janus, sem er 25 ára, flutti til Íslands frá Færeyjum sautján ára gamall, en hann ákvað ungur að verða tónlistarmaður. „Ég lærði smá á gítar en fannst það ekki gaman, ég vildi bara vera í rokkinu,“ segir Janus sem vinnur í dag sem pródúsent meðfram eigin tónlistarsköpun.
Sónar Tónlist Mest lesið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Lífið The Lazarus Project: Varúð, veldur svefnleysi Gagnrýni Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Lífið Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Lífið Fleiri fréttir „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Sjá meira