Matur

Helgarmaturinn – Taílenskt salat

Dagbjört Inga Hafliðadóttir, keppandi í MasterChef.
Dagbjört Inga Hafliðadóttir, keppandi í MasterChef.

Dagbjört Inga Hafliðadóttir lauk nýverið þátttöku sinni í Masterchef. Hún deilir hér með Lífinu einum af sínum uppáhaldsréttum sem hún segist iðulega fá mikið lof fyrir.

Taílenskt "fusion"-nautasalat

(fyrir fjóra sem forréttur eða tvo sem léttur aðalréttur)



"Væn" sneið af fersku nautafillet

1 rauður chilli, smátt skorinn

2 hvítlauksrif, söxuð

2 cm engifer, rifinn

1 msk. fiskisósa (taílensk "fish sauce" fæst í flestum matvörubúðum)

3-4 msk. sojasósa

1 msk. sesamolía

Safi af einni "lime"

1 tsk. sykur

4-5 vorlaukar, þunnar sneiðar

1 msk. olía (mild)

Ein dós kirsuberjatómatar

Pakki kóríanderlauf

Salatlauf

Gera marineringu: Blanda saman chilli, hvítlauksrifum, engifer, fiskisósu, sojasósu, sesamolíu, safa af lime, sykri og helmingi af vorlauknum. Setja nautakjötsneiðina í marineringuna.

Hita pönnu á frekar háum hita. Bæta olíunni við. Kjötsneiðin sett á pönnuna og steikt í u.þ.b. 2 mínútur á einni hlið. Snúa kjötsneiðinni við og bæta við kirsjuberjatómötunum og afganginn af marineringunni.

Steikja í u.þ.b. 2 mínútur aftur. Pannan tekin af hita og kjötið sett í álpappír til að hvíla í u.þ.b. 2 mínútur. Kóríander og restin af vorlauknum bætt við afganginn af marineringunni á pönnunni.

Kjötið skorið í þunnar sneiðar og lagt yfir salatblöðin. Marineringu og öðru á pönnunni hellt yfir. Gott með léttu rauðvíni með litlu tanníni í, t.d. Beaujolais Nouveau. Bonne appétit!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×