Lífið

Heimildamyndir um Bieber og Spears floppa

Justin Bieber og Britney Spears
Justin Bieber og Britney Spears Samsett/Getty
Nýútkomnar heimildamyndir um poppstjörnunnar Britney Spears og Justin Bieber ganga ekki jafn vel og vonast var til.

Heimildamyndin um Britney Spears var frumsýnd þann 22. desember á E!-stöðinni. Myndin heitir I Am Britney Jean og aðeins 706,000 manns horfðu á frumsýninguna, sem er langt fyrir neðan þær áhorfendatölur sem vonast var eftir.

Heimildamyndin Believe, um Justin Bieber, hefur heldur ekki staðist væntingar en hún hefur einungis halað inn rúmlega þremur milljónum dollara síðan hún var frumsýnd fyrir þremur dögum.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×