Jól

Átjánda piparkökuhúsakeppni Kötlu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Katla
Hin árlega piparkökuhúsakeppni Kötlu er nú haldinn í dag, 18. árið í röð og er keppnin í Smáralind. Margar stórskemmtilegar byggingar voru settar saman fyrir keppnina að þessu sinni og má þar nefna kastala, háhýsi, hundakofa, Alþingishúsið, Hallgrímskirkju og margt fleira.

„Mörg framúrskarandi hús hafa skilað sér inn í keppnina á þeim átján árum sem hún hefur verið við lýði og virðist hugmyndaflugi landsmanna lítil sem engin takmörk sett þegar kemur að samsetningu piparkökuhúsanna. Enn er tími til þess að taka þátt, en skil á húsum er 4. desember næstkomandi,“ segir í tilkynningu frá Kötlu.

Hægt er að sjá fleiri þessara húsa hér að neðan.

„Að þessu sinni er leikurinn haldinn í samvinnu við Smáralind, Dúka, Líf & List, 66°norður og Debenhams. Keppt er í tveimur flokkum, fullorðinsflokki og barna- og unglingaflokki og til mikils að vinna. Auk þess keppa allir þátttakendur um einstaklega glæsileg aukaverðlaun, veglega Kitchen-Aid hrærivél sem ætti að koma í góðar þarfir við næsta bakstur.“

„Húsunum á að skila í Smáralind þann. 4. desember á milli kl. 16 og 19 og þar verða þau til sýnis fram til 21. desember en þá verður tilkynnt um sigurvegara. Að því loknu geta eigendur húsana tekið þau með sér heim og notið þeirra yfir hátíðarnar. Allar nánari upplýsingar um Piparkökuhúsaleikinn má finna á vefsíðu Kötlu, www.katla.is/piparkokuhuseilkur.“

Mynd/Katla
Mynd/Katla





×