Innlent

Ákærðu fá ekki að vera viðstaddir vitnaleiðslur

Stefán Blackburn, Stefán Logi Sívarsson, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson.
Stefán Blackburn, Stefán Logi Sívarsson, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson. MYND/GVA
Fyrirtaka í Stokkseyramálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Þar var tekist á um hvort sakborningum í málinu verði gert að víkja úr dómsal meðan á vitnaleiðslum stendur. Aðalmeðferð  í málinu hefst á mánudag og standa yfir í þrjá daga.

Annar brotaþolanna fór fram á að ákærðu yrðu ekki viðstaddir vitnaleiðslurnar og kvað dómarinn upp þann dóm að svo yrði í Héraðsdómi í morgun.

Verjendur kærðu úrskurðinn og kröfðust þess að hann yrði felldur úr gildi. Það mun það því skýrast í dag eða á morgun hvort hann standist.

Í Stokkseyramálinu eru fimm menn eru ákærðir vegna frelsissviptingar og hrottalegra líkamsárása á tvo menn.

Báðir voru þeir numdir á brott í Reykjavík, haldið og þeir pyntaðir í húsum á höfuðborgarsvæðinu. Annar maðurinn náði að flýja eftir að hann hafði verið fluttur í hús á Stokkseyri.

Þannig komst upp um málið. Á þeim tíma var lýst var eftir Stefáni Loga Sívarssyni.

Hann er grunaður um að vera höfuðpaur í málinu. Þeir ákærðu eru Stefán Logi Sívarsson, Stefán Blackburn, Davíð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason  og Gísli Þór Gunnarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×